Frá sýningu Benedikts búálfs í Samkomuhúsinu.
Leikritið Benedikt búálfur var frumsýnt í Samkomuhúsinu um síðustu helgi. Óhætt er að segja að viðtökur hafi verið afbragðsgóðar og voru þeir ófáir sem lýstu hrifningu sinni á samfélagsmiðlum eftir frumsýningarhelgina. Um næstu helgi eru fjórar sýningar og gert er ráð fyrir að sýningar standi út apríl.
Það er Leikfélag Akureyrar, í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, sem setur á svið þetta ævintýralega og vinsæla verk eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson. Söngleikurinn, sem var frumsýndur árið 2002, er einn allra þekktasti barnasöngleikur þjóðarinnar og hefur töfrandi saga og grípandi tónlist Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar unnið hug og hjörtu íslenskra barna á öllum aldri.
Leikritið fjallar um vinina Benedikt búálf og Dídí mannabarn og ferðalag þeirra um Álfheima. Tóta tannálfi hefur verið rænt og allur Álfheimur er í hættu. Vinirnir leggja af stað og á leiðinni lenda þau í ýmsum ævintýrum og ásamt dreka, blómálfum og alls konar furðuverum hjálpast þau að við að bjarga Álfheimum.
Með hlutverk Benedikts fer Árni Beinteinn Árnason en aðrir leikarar eru Björgvin Franz Gíslason, Valgerður Guðnadóttir, Króli, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson og Birna Pétursdóttir. Leikstjóri er Vala Fannell.
Nánari upplýsingar og lausir miðar á vef Menningarfélags Akureyrar.