Tónleikarnir Mysingur III á Akureyrarvöku 2022. Ljósmynd: Andrés Rein Baldursson.
Akureyrarbær auglýsir eftir umsóknum í Menningarsjóð fyrir árið 2023. Umsóknarfrestur allra umsókna er til og með 23. nóvember 2022.
Hægt er að sækja um í fjórum flokkum eftir því sem við á:
- Verkefnastyrkir
Verkefni sem efla menningarstarfsemi í sveitarfélaginu Akureyrarbæ.
Styrkir eru að upphæð 80.000-400.000 kr. Einnig verður úthlutað tveimur styrkjum að upphæð 600.000 kr. til stærri verkefna í tengslum við Listasumar (7. júní-23. júlí) eða Akureyrarvöku (25.-27. ágúst).
- Samstarfssamningar
Verkefni sem stuðla að fjölbreyttu menningarlífi í sveitarfélaginu.
Hægt er að sækja um samstarf til tveggja eða þriggja ára í senn.
Upphæðir samstarfssamninga geta verið á bilinu 100.000-600.000 kr.
- Starfslaun listamanna
Umsóknir skulu innihalda greinargóðar og hnitmiðaðar upplýsingar um fyrirhuguð verkefni á starfslaunatímabilinu, listferil og menntun.
Árið 2023 eru veitt starfslaun að upphæð 2.700.000 kr. sem dreifast jafnt yfir 9 mánuði. Öllum sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu Akureyrarbæ og starfa að öllu eða mestu leyti í sveitarfélaginu er heimilt að sækja um í eigin nafni.
- Sumarstyrkur ungra listamanna
Úthlutað verður 1-2 styrkjum til ungs og efnilegs listafólks á aldrinum 18-25 ára sem er í framhaldsnámi eða á leið í framhaldsnám í sinni grein. Markmiðið er að viðkomandi geti dregið úr sumarvinnu (júní-ágúst) með námi og þess í stað lagt stund á list sína bæði með æfingum og viðburðum.
Upphæð hvers styrks er 600.000 kr. sem dreifist jafnt yfir mánuðina júní, júlí og ágúst. Á móti styrknum mun viðkomandi halda viðburði á Listasumri og/eða Akureyrarvöku, allt eftir nánara samkomulagi við forstöðumann atvinnu- og menningarmála og verkefnisstjóra menningarmála.
Skilafrestur allra umsókna er til og með 23. nóvember 2022.
Hagnýtar upplýsingar:
Upplýsingar um reglur Menningarsjóðs, Samþykkt um starfslaun listamanna og Menningarstefnu Akureyrar má sjá HÉR.
Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á www.akureyri.is. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum.
Nánari upplýsingar veitir Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála í netfanginu almara@akureyri.is.