Akureyrarbær óskar eftir áhugasömum aðila til að taka upp fundi bæjarstjórnar. Í verkinu felst upptaka á hljóði og mynd, öll eftirvinnsla og miðlun á vef.
Bæjarstjórnarfundir eru haldnir í fundarsal í Ráðhúsi, að jafnaði fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar kl. 16.
Tímabilið sem um ræðir er september 2022 til og með desember 2024.
Nánari upplýsingar ásamt verk- og kröfulýsingu veitir Jón Þór Kristjánsson, forstöðumaður þjónustu og þróunar, í netfanginu jon.thor@akureyri.is.
Tilboðsfrestur er til og með 24. ágúst næstkomandi.