Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi fyrir Sunnuhlíð 12.
Skipulagssvæðið afmarkast af lóðarmörkum Sunnuhlíðar 12. Tillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu heilsugæslustöðvar í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð ásamt viðbyggingu á tveimur hæðum við núverandi húsnæði til norðurs, alls um 800 m2. Þá gerir tillagan jafnframt grein fyrir bílastæðum, umferðarflæði og bílskýli fyrir heilsugæslu auk stækkun lóðarinnar til austurs og færslu á göngustíg.
Skipulagstillöguna má nálgast hér og greinargerð með tillögunni hér.
Tillagan verður jafnframt aðgengileg hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar. Hægt er að skila inn athugasemdum um tillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til og með 3. júlí 2022.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.