Breyting á deiliskipulagi Rangárvalla.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 11. nóvember 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Rangárvelli 2.
Breytingin felur í sér stækkun á byggingarreit fyrir nýtt anddyri milli bygginga 1 og 5 og nýtt hjólaskýli við norðvesturhorn byggingar 1.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarbæjar, 20. nóvember 2020,
Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild - Útgáfud.: 4. desember 2020