Hluti af þeim lóðum sem eru lausar til umsóknar.
Frestur til að sækja um 22 nýjar byggingarlóðir í Holtahverfi austan Krossanesbrautar rennur út miðvikudaginn 6. október.
Lóðirnar voru auglýstar 15. september síðastliðinn og er miðað við að flestar þeirra verði byggingarhæfar í byrjun maí 2022 og aðrar í október sama ár. Gert er ráð fyrir að lágmarki 140 íbúðum á lóðunum í fjölbýlis-, rað-, par- og einbýlishúsum.
Áhugasamir uppbyggingaraðilar eru hvattir til að kynna sér málið og sækja um. Hér eru nánari upplýsingar.
Sjá líka vefsvæðið lausar lóðir á heimasíðunni og kortavef Akureyrarbæjar þar sem hægt er að skoða allar lausar lóðir.
Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar.