Í samþykkt Akureyrarbæjar um götu- og torgsölu eru afmörkuð svæði í miðbæ þar sem heimiluð er sölustarfsemi utandyra. Í samræmi við samþykktina er hér með auglýst eftir umsóknum um langtímaleigusvæði fyrir söluvagna í Hafnarstræti fyrir árið 2022.
Um er að ræða eitt stæði fyrir söluvagn í Hafnarstræti, staðsett neðst í Skátagili. Útgefið leyfi gildir í 6 eða 12 mánuði.
Umsækjendur skulu kynna sér samþykkt um götu- og torgsölu og fylgiskjöl á slóðinni akureyri.is/torgsala og skila inn umsókn í gegnum þjónustugátt thjonustugatt.akureyri.is ásamt tilskyldum gögnum fyrir 13. apríl 2022.
16. mars 2022
Skipulagsfulltrúi