Hver skara framúr í jafnréttis- og mannréttindamálum?

Mynd eftir Maríu Helenu Tryggvadóttur
Mynd eftir Maríu Helenu Tryggvadóttur

Akureyrarbær auglýsir eftir tilnefningum til mannréttindaviðurkenningar sveitarfélagsins. Tilgangurinn er að veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis og mannréttinda í samræmi við mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.

Viðurkenningu geta hlotið:

Fyrirtæki/stofnanir sem hafa:

  • Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttis- og mannréttindamálum
  • Unnið að því að afnema staðalímyndir kynjanna
  • Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi mannréttinda
  • Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni á vinnustöðum

Félög/félagasamtök sem hafa:

  • Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttis- og mannréttindamálum
  • Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi mannréttinda
  • Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni innan félags
  • Veitt leiðbeinendum/þjálfurum fræðslu um jafnréttis- og mannréttindamál

Einstaklingar sem hafa skarað fram úr í vinnu að jafnréttis- og mannréttindamálum eða unnið gegn staðalímyndum.

Einnig kemur til álita að veita hvatningarviðurkenningu vegna nýjunga sem stuðla að framgangi jafnréttis og mannréttinda í samræmi við mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.

Rökstuddum tilnefningum skal skilað í síðasta lagi 20. mars nk. í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar sem er aðgengileg hér. Fólk skráir sig inn í þjónustugáttina með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Tilnefningar til jafnréttisviðurkenninga er að finna undir flipanum umsóknir, uppsagnir o.fl. eyðublöð.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan