Hvannavellir - deiliskipulagsuppdráttur
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1.mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Hvannavelli 10-14.
Skipulagssvæðið er 0,9 ha og afmarkast af lóðunum Hvannavöllum 10, 12 og 14. Gert er ráð fyrir tveimur nýjum byggingum innan núverandi lóða á svæðinu. Á lóð Hvannavalla 10 er gert ráð fyrir fjölbýlishúsi sem verði að hámarki fjórar hæðir með efstu hæðina inndregna og á lóð Hvannavalla 16 er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði á þremur hæðum með efstu hæðina inndregna. Þá verður skilgreind ný lóð fyrir dreifistöð rafveitu innan svæðisins.
Deiliskipulagsuppdrátt má nálgast hér og greinargerð með skipulagsskilmálum hér .
Tillagan verður jafnframt aðgengileg hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 14. desember - 31. janúar 2023. Hægt er að skila inn athugasemdum um tillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 31. janúar 2023.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.