Umferðarstýring á Strandgötu austan Hjalteyrargötu

Skipulagsráð samþykkti þann 13. mars 2019, að beiðni Hafnasamlags Norðurlands, að ekki verði leyfður akstur austur Strandgötu, frá Hjalteyrargötu að Laufásgötu. Takmörkun þessi mun gilda þá daga sem skemmtiferðaskip eru við Oddeyrarbryggju sumarið 2019 og verður tímabundin í tvær klst. frá áætlaðri komu skips.

5. apríl 2019
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan