Umferðarstýring á Strandgötu austan Hjalteyrargötu

Skipulagsnefnd samþykkti þann 28. maí 2014, að beiðni Hafnasamlags Norðurlands, að ekki verði leyfður akstur austur Strandgötu, frá Hjalteyrargötu að Laufásgötu. Takmörkun þessi mun gilda þá daga sem skemmtiferðaskip eru við Oddeyrarbryggju sumarið 2014 og verður tímabundin í tvær klst. frá áætlaðri komu skips.

 

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan