Sandgerðisbót, hreinsistöð fráveitu – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar samþykkti 21. febrúar 2017 að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Sandgerðisbót og umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Svæðið sem breytingum tekur nær til lóðar fyrir hreinsistöð fráveitu sem er nr. 33 við Óseyri. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun lóðar og breytingum á byggingarreitum. Göngustígur innan lóðarinnar meðfram grjótgarði er felldur niður.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun frá 24. febrúar til 7. apríl 2017, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt aðgengileg hér að neðan.

Uppdrátttur og greinargerð - tillaga

Umhverfisskýrsla

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 föstudaginn 7. apríl 2017 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.


            Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan