Samþykktar skipulagstillögur

Auglýsingum breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna tilfærslu á Hólasandslínu.

Skipulagsstofnun staðfesti 21. mars 2019 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem
samþykkt var í bæjarstjórn 5. mars 2019.
Í breytingunni felst tilfærsla á Hólasandslínu 3 þar sem jarðstrengurinn liggur sunnan við flugbrautina á Akureyrarflugvelli.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsstofnun, 21. mars 2019.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
B-deild – Útgáfud.: 4. apríl 2019

 

Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna Hesjuvalla.

Skipulagsstofnun staðfesti 21. mars 2019 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 22. janúar 2019.
Í breytingunni felst að óbyggðu svæði í landi Hesjuvalla er breytt í íbúðarbyggð, ÍB24B, 3.500 m² að stærð.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulags­laga nr. 123/2010.

Skipulagsstofnun, 21. mars 2019.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
B-deild – Útgáfud.: 4. apríl 2019

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan