Breyting á deiliskipulagi miðbæjar – Skipagata 12
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 15. október 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir
Skipagötu 12.
Breytingin felur í sér að nýtingarhlutfall er hækkað, byggingarreitur er stækkaður til vesturs og
norðurs og á 2. og 3. hæð verði heimilt að byggja svalir 1,75 m út fyrir byggingarreit til austurs yfir
Skipagötu.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarbæjar, 4. desember 2019,
Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
__________
B-deild – Útgáfud.: 16. desember 2019