Skipulagsstofnun staðfesti 5. febrúar 2020 óverulega breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, sem samþykkt var í bæjarstjórn 21. janúar 2020.
Breytingin felst í að nýta fyrirhugaða lagnabrú Landsnets yfir Glerárgil sem reið- og göngubrú. Einnig er afmörkuð útivistarleið samhliða reiðleið yfir núverandi brú sem er um 300 metrum neðar í Glerárgili.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 5. febrúar 2020.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 20. febrúar 2020