Samþykkt skipulagstillaga fyrir Oddeyrargötu 38

Breyting á deiliskipulagi Norðurbrekku – neðri hluta.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 11. september 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Oddeyrargötu 38.
Breytingin felur í sér að byggingarreitur stækkar um 6 metra til suðurs frá núverandi íbúðarhúsi þar sem gert er ráð fyrir möguleika á viðbyggingu við núverandi hús. Viðbygging skal að hámarki vera 90 m² og veggir og mænir ekki vera hærri en á núverandi húsi. Nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 0,387 í 0,585.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarbæjar, 16. apríl 2020,

Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 30. apríl 2020

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan