Skipulagsstofnun staðfesti þann 22. maí 2014 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn
Akureyrar þann 6. maí 2014. Niðurstaða sveitarstjórnar var auglýst 14. maí 2014.
Í breytingunni felst að fallið er frá strandlínu með síki og gerðar breytingar á ákvæðum fyrir miðbæinn svo sem um
hæðir húsa og bílageymslur. Mörkum miðbæjarsvæðis og útfærslu hafnarsvæðis er breytt. Glerárgötu er hliðrað
lítillega á kafla auk þess sem henni er breytt í tvær akreinar í stað fjögurra.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsstofnun, 22. maí 2014.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
Ottó Björgvin Óskarsson
B-deild - Útgáfud.: 6. júní 2014