Nr. 211/2016 Auglýsing um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Stekkjartún 32-34

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 19. janúar 2016 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Naustahverfi 1. áfanga á lóð nr. 32-34 við Stekkjartún.
Breytingin gerir m.a. ráð fyrir stækkun lóðar Stekkjartúns 32-34 að lóð Stekkjartúns 30 og niðurfellingu á stíg þar á milli. Íbúðafjöldi eykst úr 12-14 íbúðum í allt að 20 íbúðir. Ekki verður gert ráð fyrir bílakjallara og verður því fjölgun bílastæða á lóð.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 24. febrúar 2016,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála

B deild - Útgáfud.: 9. mars 2016

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan