Breyting á deiliskipulagi – Miðhúsabraut - Súluvegur.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 21.
janúar 2014 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Miðhúsabraut - Súluveg.
Breytingin felur í sér breytt nýtingarhlutfall á lóð nr. 2 við Súluveg.
Breyting á deiliskipulagi – Borgargil 1.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 21. janúar 2014 í samræmi
við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Borgarbraut 1.
Breytingin felur í sér minnkun lóðar við Borgargil 1.
Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 134/2014 sem fellur þar með brott.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 11. febrúar 2014,
Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 12. febrúar 2014