Breyting á deiliskipulagi miðbæjar, vegna landfyllingar við Hofsbót. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 16. febrúar 2016 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir miðbæinn, vegna landfyllingar við Hofsbót. Breytingin felur í sér að landfylling sunnan við Strandgötu 14 er stækkuð. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.