Móahverfi Akureyri – opið hús

Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Móahverfi á Akureyri verður kynnt á opnu húsi í Síðuskóla fimmtudaginn 7. apríl kl. 16-18 (inngangur íþróttahúss).

Íbúar, hagsmunaaðilar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér efni tillögunnar. Starfsfólk skipulagssviðs verður á staðnum ásamt skipulagshönnuði og veita nánari upplýsingar um efni tillögunnar.

Akureyri, 6. apríl 2022
Skipulagsfulltrúi

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan