Miðbær - Hofsbót og Torfunef

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.

Skipulagssvæðið afmarkast af Strandgötu í norðri og Glerárgötu í vestri. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir fjölgun lóða fyrir hafnsækna starfsemi, skilmálum á lóðum er breytt, stærð Torfunefsbryggju er breytt og breytingar eru gerðar á gönguleiðum og bílastæðum.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 25. maí til júní 6. júlí 2016, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. 

Einnig er hægt að skoða tillöguna hér að neðan:

Tillöguuppdráttur

Skýringaruppdráttur

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 6. júlí 2016 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

 25. maí 2016
            Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan