Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagssvæðið afmarkast af Glerárgötu í austri, Gránufélagsgötu í norðri, Geislagötu í vestri og húsum við
Glérárgötu 1 og 3b að sunnanverðu.
Tillagan gerir ráð fyrir sameiningu lóða 3, 5 og 7 við Glerárgötu.
Hægt er að skoða tillöguuppdrátt ásamt greinargerð hér að neðan sem einnig liggur frammi í þjónustuanddyri
Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 8. janúar til 19. febrúar 2014, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér
tillöguna og gert við hana athugasemdir.
Uppdráttur
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 19. febrúar 2014 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar
Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram..
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
8. janúar 2014
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar