Menntaskólinn á Akureyri og aðliggjandi íbúarsvæði – Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi.

Skipulagssvæðið afmarkast af Þórunnarstræti, Hrafnagilsstræti, Skólastíg, Eyrarlandsvegi, austurmörkum lóða við Barðstún og lóðarmörkum Menntaskólans á Akureyri til suðurs. Tillagan tekur m.a. á aðgengi gangandi vegfarenda, bílastæðamálum í húsagötum og á lóð Menntaskólans ásamt mögulegum endurbótum á gatnamótum Hrafnagilsstrætis og Eyrarlandsvegar. Tekið er á afmökunum lóða og settir inn byggingarreitir fyrir viðbyggingar.

Deiliskipulag Menntaskólans á Akureyri frá árinu 2001 verður fellt úr gildi.

Hægt er að skoða tillöguna hér að neðan.

Uppdráttur
Greinargerð 
Húsakönnun

Einnig mun tillöguuppdráttur ásamt greinargerð og húsakönnun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 11. maí til 22. júní 2016, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. 

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 22. júní og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

11. maí 2016

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan