Kjarnaskógur - gróðrastöð – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Skipulagsráð Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagssvæðið afmarkast af Kjarnaskógi í suðri og vestri, Hömrum í norðri og Kjarnabraut í austri.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að skipulagssvæðið stækki til vesturs þar sem gert er ráð fyrir nýju ræktunarsvæði. Lóðarstærðir breytast, afmarkaðir eru byggingarreitir fyrir þrjú ný gróðurhús, gert er ráð fyrir starfsmanna aðstöðu, bílastæði breytast, smávægileg breyting er gerð á aðkomu og rotþró syðst á svæðinu fellur út.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð er til sýnis á 1. hæð, í Ráðhúsi Akureyrarkaupstaðar, frá 20. mars til 1. maí 2019, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Hægt er að skoða tillöguna hér.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 1. maí 2019 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

 

20. mars 2019
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan