Kjarnalundur – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu á lóð Hótel Kjarnalunds.

Skipulagsbreytingin nær til lóðar Kjarnalundar. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir breytingum á byggingarreitum fyrir viðbyggingar við Hótel Kjarnalund. Byggingarreitur til suðurs verður fyrir fjögurra hæða viðbyggingu auk kjallara og byggingarreitur til austurs verður fyrir tveggja hæða viðbyggingu auk kjallara. Byggingarreitur til norðurs er felldur niður en gert er ráð fyrir fjölgun bílastæða.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 28. september til 9. nóvember 2016, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig aðgengileg hér fyrir neðan:

Kjarnalundur - uppdráttur

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 9. nóvember 2016 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

            28. september 2016

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan