KA svæði - Breyting á deiliskipulagi

KA svæði - breyting á deiliskipulagi
KA svæði - breyting á deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi KA svæðis – Lundarskóla – Lundarsels.

Skipulagssvæðið afmarkast af íþrótta- og æfingasvæði KA. Breytingin felur m.a. í sér snúning núverandi byggingarreita fyrir knattspyrnuvöll og áhorfendastúku um 90°, nýjan byggingarreit fyrir tengibyggingu milli áhorfendastúku og núverandi íþróttahúss. Jafnframt eru settir skilmálar fyrir byggingarreiti fyrir markatöflu, sjónvarpsupptökuhús og fjögur ljósamöstur fyrir flóðlýsingu, 27 m á hæð. Þá gerir tillagan ráð fyrir fjölgun bílastæða meðfram Þingvallastræti og tilfærslu núverandi innkeyrslu inn á svæðið.

Deiliskipulagsuppdrátt má nálgast hér .

Tillagan verður jafnframt aðgengileg hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 5. janúar 2023 - 12. febrúar 2023. Hægt er að skila inn athugasemdum um tillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 16. febrúar 2023.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan