Opinn íbúafundur um drög að nýju skipulag miðbæjarins verður haldinn í Hofi, Hömrum, kl. 17:00 -19:00 mánudaginn 2.
desember 2013.
Á fundinn munu þeir Logi Már Einarsson, arkitekt hjá Kollgátu ehf. og Ómar Ívarsson, skipulagsfræðingur hjá
Landslagi ehf., hönnuðir miðbæjarskipulagsins kynna drögin.
Á fundinum munu fulltrúar skipulagsnefndar og skipulagsstjóri verða til svara auk hönnuða.
Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér fyrstu hugmyndir að nýju miðbæjarskipulagi.
27. nóvember 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar