Hafnarsvæði sunnan Glerár – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Tillaga
Tillaga

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir hafnarsvæðið sunnan Glerár.

Breytingin nær til Skipatanga 2-4. Gert er ráð fyrir að byggingarreitur verði felldur niður og lóðin verði geymslu og athafnasvæði í umsjá hafnarstjórnar.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 14. desember 2016 til 25. janúar 2017, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig aðgengileg hér fyrir neðan.

Hafnarsvæði sunnan Glerár - tillaga

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 25. janúar 2017 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

                                                  14. desember 2016
                                                  Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan