Hafnarsvæði í Krossanesi, Akureyri - Drög að tillögu að breytingu á deiliskipulagi

Deiliskipulagsuppdráttur fyrir og eftir
Deiliskipulagsuppdráttur fyrir og eftir

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kynnir hér með skv. 4.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu á vinnslustigi að breytingu á deiliskipulagi fyrir hafnarsvæði í Krossanesi, Akureyri.

Skipulagstillagan gerir ráð fyrir að útbúin verði ný lóð á fyrirhugaðri landfyllingu á norðurjaðri hafnarsvæðisins. Fyrirhuguð lóð verður notuð undir birgðastöð og bílavog. Aðkoma að lóðinni verður um lóð 1.03 og 1.04.

 

Helstu breytingar :

  • Afmarkaður er byggingarreitur fyrir mannvirki (síló og vog). Nýtingarhlutfall er 0,4 og hámarkshæð mannvirkja er 30 m.
  • Lóð 1.04 verður minnkuð um 54 m2.
  • Skilgreind er lega löndurlagna fyrir sement og asfalt.
  • Kvöð um fráveitulagnir, vatnslagnir og raflagnir er sett á lóðir 1.04, 1.05, 1.08 og 1.09.
  • Kvöð um umferðarrétt/aðkomuleið að nýrri lóð og hafnarbakka er sett á lóð 1.04.
  • Þjónustu- og umferðarsvæði hafnarinnar 1.11 er minnkað.

 

Tillöguuppdrætti má nálgast hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrar frá 16. janúar - 1. febrúar 2024 og á heimasíðu bæjarins á sama tíma: www.akureyri.isneðst á forsíðu undir: Auglýstar skipulagstillögur.

Ábendingum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram má skila með tölvupósti á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akureyri.

Tillaga að breyting á deiliskipulagi Hafnarsvæðisins á Krossanesi, Akureyri - Ný lóð undir sementssíló og bílavog (pdf).

Frestur til að koma á framfæri ábendingum við tillöguna er til 1. febrúar 2024.

16. janúar 2024
Skipulagsfulltrúi

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan