Tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir Giljaskóla og götuna Kiðagil er í auglýsingu í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem má sjá hér.
Íbúafundur verður haldinn í sal Giljaskóla fimmtudaginn 8. febrúar kl. 17:00 þar sem gerð verður nánari grein fyrir skipulagsbreytingunni og áhrifum hennar. Allir áhugasamir eru velkomnir.
Athugasemdum við skipulagsbreytinguna er hægt að koma á framfæri skriflega til skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akureyri eða á netfangið: skipulagssvid@akureyri.is til 21. febrúar 2018.
Sviðsstjóri skipulagssviðs