Gildistaka deiliskipulagsbreytingar, Kristjánshagi 2 og Davíðshagi 4

Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 25. ágúst 2016 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Hagahverfi vegna Kristjánshaga 2 og Davíðshaga 4.
Breytingin felur m.a. í sér að á lóð nr. 2 við Kristjánshaga eykst nýtingarhlutfall úr 0,79 í 1,10, byggingarreitur stækkar og vegghæð hækkar. Þrír lóðarhlutar fyrir bílastæði eru sameinaðir og stækkar heildarflatarmál lóðarinnar um 81,6 m². Lóð Davíðshaga 4 minnkar um 31,2 m².
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 25. ágúst 2016,

Anna Bragadóttir,
verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 25. ágúst 2016

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan