Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. desember 2016 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Kjarnalund.
Breytingin nær til lóðar Hótels Kjarnalundar, landnr. 150012. Breytingar eru gerðar á byggingarreitum fyrir viðbyggingar og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,3 í 0,35.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 12. janúar 2017,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild - Útgáfud.: 26. janúar 2017