Gildistaka deiliskipulagsbreytingar, Ægisnes 3

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 1. nóvember 2016 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Krossaneshaga, B-áfanga.

Breytingin felur í sér að byggingarreitur stækkar á lóð nr. 3 við Ægisnes. Vestan við lóðina breytast skipulagsmörk B-áfangans.

Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 2. nóvember 2016,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 3. nóvember 2016

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan