Gildistaka deiliskipulagsbreytinga, Vættagil 25-27 og 29-31

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 20. desember 2016 samþykkt deiliskipulags-breytingu fyrir lóðir nr. 25-27 og 29-31 við Vættagil í Giljahverfi.
Breytingin felur í sér að lóð nr. 25-27 við Vættagil stækkar til suðurs um 80,9 m² og lóð nr. 29-31 minnkar að sama skapi. Byggingarreitur fyrir Vættagil 27 stækkar að nýjum lóðamörkum.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 22. desember 2016,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild – Útgáfud.: 6. janúar 2017

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan