Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 21. febrúar 2017 samþykkt tvær deiliskipulagsbreytingar:
Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæða sunnan Glerár.
Breytingin felur í sér að á lóð Sjávargötu 4 eru m.a. gerðir byggingarreitir fyrir vöruskemmu, kornsíló og vöruhús.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Breyting á deiliskipulagi gróðrarstöðvar og safnasvæðis á Krókeyri.
Breytingin felur í sér að gerð er 34 m² lóð með byggingarreit neðanjarðar fyrir dælustöð fráveitu.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 28. febrúar 2017,