Gildistaka deiliskipulagsbreytinga, Rangárvellir

Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 28. september 2016 samþykkt deiliskipulags­breytingu fyrir Rangárvelli.
Breytingin felur í sér að á lóð Norðurorku er gerður nýr byggingarreitur fyrir skrifstofubyggingu á tveimur hæðum.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 30. september 2016,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 14. október 2016


Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan