Gildistaka deiliskipulagsbreytinga fyrir Akstursíþrótta og skotsvæðið á Glerárdal

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. september 2016 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir akstursíþrótta- og skotsvæðið á Glerárdal.
Breytingin er á svæði Skotfélags Akureyrar og felur m.a. í sér að göngustígur er færður ofar í landið og samsíða honum er gert ráð fyrir 250 metra jarðvegsmön.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 7. september 2016,

Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 8. september 2016

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan