Gildistaka deiliskipulagsbreytinga, Davíðshagi 12 og Draupnisgata 2

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 21. mars 2017 samþykkt tvær breytingar á deili­skipulagi:

Breyting á deiliskipulagi Hagahverfis.
Breytingin felur m.a. í sér að á lóð nr. 12 við Davíðshaga hækkar nýtingarhlutfall úr 0,7 í 1,0. Heildarlóðastærð fer úr 2.068 m² í 2.124 m² vegna stækkunar lóðarhluta fyrir bílastæði.

Breyting á deiliskipulagi Austursíðu – athafnasvæði.
Breytingin felur m.a. í sér að á lóð nr. 2 við Draupnisgötu hækkar nýtingarhlutfall úr 0,3 í 0,4. Byggingarreitur stækkar og hámarkshæð langhliða hækkar úr 4,0 m í 4,8 m.

Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 23. mars 2017,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 6. apríl 2017

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan