Gildistaka deiliskipulagsbreytinga, Austurbrú 2-12

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 18. október 2016 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Drottningarbrautarreit.
Breytingin felur í sér að nýtingarhlutfall á lóðum við Austurbrú 2-12 hækkar og eykst hámarks­byggingarmagn um u.þ.b. 220 m² í kjallararými. Aukið byggingarmagn hefur engin áhrif á heildaryfirbragð húsanna.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 25. október 2016,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 8. nóvember 2016

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan