Gildistaka deiliskipulags Menntaskólans á Akureyri og aðliggjandi íbúðarsvæða

Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 7. júlí 2016 samþykkt deiliskipulag fyrir Menntaskólann á Akureyri og aðliggjandi íbúðarsvæði.
Deiliskipulagssvæðið afmarkast af Þórunnarstræti, Hrafnagilsstræti, Skólastíg, Eyrarlandsvegi, austur­mörkum lóða við Barðstún og lóðarmörkum Menntaskólans á Akureyri til suðurs. Skipu­lags­svæðið er fullbyggt en endurskoðaðar eru götur og gönguleiðir, lóðarmörk skilgreind og byggingar­reitir fyrir viðbyggingar.
Með auglýsingu þessari fellur úr gildi eldra deiliskipulag fyrir Menntaskólann á Akureyri frá 2001.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 1. september 2016

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan