Drög að nýju deiliskipulagi fyrir athafnalóðir sunnan Hlíðarfjallsvegar

Þessa dagana er í gangi vinna við nýtt deiliskipulag fyrir athafnalóðir sunnan við Hlíðarfjallsveg. Nú eru í kynningu drög að skipulagstillögu fyrir svæðið.

Skipulagssvæðið er merkt sem reitur AT16 í gildandi aðalskipulagi. Svæðið liggur sunnan Hlíðarfjallsvegar og er um 6,5 ha að stærð. Það afmarkast af óbyggðum svæðum og græna treflinum SL7.

Markmið með deiliskipulaginu er að skapa svigrúm fyrir uppbyggingu gagnavers og annarrar hreinlegrar og umhverfisvænnar atvinnustarfsemi á Akureyri, ásamt því að skoða umferðarleiðir og tengingar inn á skipulagssvæðið.

Tillöguuppdrátt má nálgast hér og greinargerð hér. Tillagan verður auk þess aðgengileg í Ráðhúsi frá 16. febrúar til 4. mars 2022.

Athugasemdum og ábendingum þar sem nafn, heimilisfang og kennitala kemur fram má skila með tölvupósti á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis á Þjónustu- og skipulagssvið, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 4. mars 2022.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan