Elísabet Ásgrímsdóttir.
Laugardaginn 16. maí kl. 15 verður opnuð útskriftarsýning Myndlistaskólans á Akureyri undir yfirskriftinni Sjónmennt 2015 en
þetta er í fyrsta sinn sem sýningin fer fram í Listasafninu á Akureyri. Nemendurnir hafa lokið þriggja ára námi við
sérnámsdeildir skólans og að þessu sinni útskrifast fimm nemendur af fagurlistadeild og átta nemendur sem grafískir hönnuðir.
Opnunarhelgina 16.-17. maí verða nemendurnir á svæðinu og er mögulegt að eiga við þá samtal um verkin.
Á sýningunni má sjá fjölbreytt verk; leturhönnun, málverk, skúlptúra, innsetningar, ímyndasköpun, hljóðverk,
vídeóverk og vöruhönnun. Verkin eru mörg persónuleg og innblástur þeirra er m.a. dreginn frá æskuslóðum við
Jökulsá á Dal, gömlu handritunum, áhrifum tónlistar á sköpunarferlið, vangaveltum um erfðir og listrænum möguleika á
nýtingu grjóts úr Holuhrauni og Vaðlaheiðargöngunum svo fátt eitt sé nefnt.
Listhönnunardeild - grafísk hönnun: Eidís Anna Björnsdóttir, Eva Björg Óskarsdóttir, Harpa Stefánsdóttir,
Ívar Freyr Kárason, Linda Þuríður Helgadóttir, Perla Sigurðardóttir, Svala Hrönn Sveinsdóttir, Svanhildur Edda
Kristjánsdóttir.
Fagurlistadeild - frjáls myndlist: Elísabet Inga Ásgrímsdóttir, James Earl Ero Cisneros Tamidles, Jónína
Björg Helgadóttir, Margrét Kristín Karlsdóttir, Sigrún Birna Sigtryggsdóttir.
Sýningin stendur til 7. júní og er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17, en frá 2. júní kl. 10-17. Aðgangur er ókeypis.