Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri býður til málstofu 27. apríl kl. 16.15 í Háskólanum á Akureyri (Miðborg, M102). Kynntar verða niðurstöður könnunar sem nýlega fór fram á meðal íbúa á Eyjafjarðarsvæðinu. Á málstofunni fást m.a. svör við eftirfarandi spurningum:
- Geta íbúar hugsað sér að næsti bíll þeirra verði rafbíll?
- Hverjir eru duglegastir að sækja menningarviðburði í Hofi?
- Eru íbúar Akureyrar hlynntir persónukosningum til bæjarstjórnar?
- Hver er hugur íbúa smærri sveitarfélaga til sameiningar sveitarfélaga?
- Hverjir eru líklegastir til að nefna gott veður í tengslum við búsetuskilyrðin á svæðinu?
- Hvert er viðhorf íbúa til flokkunar á lífrænum úrgangi til endurvinnslu?
- Telja íbúar að þeir séu í starfi sem hentar menntun þeirra?
Það er von RHA að líflegar og skemmtilegar umræður skapist um málefni sem skipta Eyfirðinga máli. Málstofan er öllum opin og er liður í 30 ára afmælisdagskrá HA. Léttar veitingar verða í boði að lokinni málstofu.