Unnið að uppsetningu hraðahindrana í Listagili.
Verkfall félagsfólks BSRB hefur umtalsverð áhrif á ýmsa þjónustu á vegum Akureyrarbæjar. Í þeim tilfellum sem verkfallið hefur áhrif skerðist starfsemi verulega eða fellur alfarið niður:
- Strætisvagnar bæjarins ganga ekki.
- Þjónusta ferlibíla verður verulega skert.
- Sundlaugarnar á Akureyri verða lokaðar, sem og laugarnar í Grímsey og Hrísey.
- Fjölskyldugarðurinn við Sundlaug Akureyrar verður lokaður.
- Íþróttahúsið við Glerárskóla og Íþróttahöllin á Akureyri verða lokuð.
- Þjónusta frá Umhverfismiðstöð skerðist verulega, þ.m.t. sláttur og hirðing í bæjarlandinu.
- Malbikunarstöðin starfar ekki og þar af leiðandi frestast flestar gatna- og stígaframkvæmdir.
- Þá mun opnunartími Ráðhúss Akureyrarbæjar skerðast en hann verður frá kl. 11.00 til 12.00. Viðskiptavinum er bent er á að nýta sér rafræna þjónustu eins og kostur er svo sem tölvupóst, netspjall og ábendingargátt á heimasíðu.
- Þeir sem eiga erindið við launafulltrúa Akureyrarbæjar geta bókað viðtal við þá á netinu en nánari upplýsingar þjónustuna má finna með því að smella hér
.
Upplýsingar um skerta þjónustu verða uppfærðar eftir því sem þurfa þykir.