Sjallinn á Akureyri.
Undanfarið hefur birst á samfélagsmiðlinum Facebook auglýsing frá agent.is um Dirty Night sem halda átti í Sjallanum á Akureyri
laugardagskvöldið 4. febrúar nk. Akureyrarbær, rekstraraðilar Sjallans og agent.is komust í gær að samkomulagi um að Sjallinn aflýsi þessum
viðburði þar sem hann stríðir mjög gegn jafnréttisstefnu bæjarins þar sem m.a. er lögð áhersla á að vinna gegn
stöðluðum kynjaímyndum.
Viðburðir sem þessir hafa verið haldnir víða um land og verið mjög umdeildir, enda um að ræða hugmyndafræði sem lýtur að
stöðluðum kynjaímyndum.
Akureyrarbær fagnar þessum málalokum og þeirri samfélagslegu ábyrgð sem rekstraraðilar Sjallans hafa sýnt í þessu
máli.