Umhverfis- og mannvirkjaráð

10. fundur 12. maí 2017 kl. 08:15 - 11:50 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður tæknideildar
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá

1.Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Akureyrar 2017-2022

Málsnúmer 2015120164Vakta málsnúmer

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri mætti á fundinn og fór yfir drög að brunavarnaáætlun Slökkviliðs Akureyrar 2017-2022 dagsett 24. apríl 2017.

2.SVA - sala auglýsinga á strætisvagna í eigu Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2017020079Vakta málsnúmer

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar mætti á fundinn og fór yfir drög að reglum og verðskrá vegna auglýsingasölu á strætisvagna dagsett 9. maí 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja reglurnar aftur fyrir ráðið á fundi þann 16. júní 2017.

3.Umhverfis- og mannvirkjasvið - þjónustukönnun 2017

Málsnúmer 2017030206Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla dagsett 12. apríl 2017 frá Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri vegna könnunar á viðhorfi Akureyringa til þjónustu Strætisvagna Akureyrar, snjómoksturs, hálkuvarna, svifryks og hreinsunar gatna á Akureyri.
Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur til að fulltrúar RHA verði fengnir á fund þar sem þeir fari yfir niðurstöður könnunarinnar. Einnig leggur ráðið til að skýrslan verði birt á vef Akureyrarbæjar.

4.Umhverfis- og mannvirkjasvið - húsnæðismál

Málsnúmer 2017050072Vakta málsnúmer

Rætt um húsnæðismál Umhverfismiðstöðvar.

5.Endurmælingar - gjaldskrá 2017

Málsnúmer 2017050006Vakta málsnúmer

Lögð fram gjaldskrá fyrir endurmælingu bygginga og lóða fyrir árið 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs.

6.Naustaskóli 6. áfangi - lóð

Málsnúmer 2017020140Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 1 dagsett 11. maí 2017 vegna framkvæmda við suðurhluta lóðarinnar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar stöðuskýrslunni til fræðsluráðs til umsagnar.

7.Listasafn - endurbætur

Málsnúmer 2014010168Vakta málsnúmer

Lagður fram verksamningur við ÁK smíði ehf um framkvæmdir við Listasafnið.



Í upphafi þessa dagskrárliðar vakti Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista á því athygli að hann teldi sig vanhæfan að fjalla um þennan lið.

Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir umhverfis- og mannvirkjaráð og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.

Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samninginn.

Gunnar Gíslason D-lista greiddi atkvæði á móti samningnum.



Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista segir sig úr verkefnisliði um endurbætur á Listasafni Akureyrar.

8.Stöðuskýrslur rekstrar 2017

Málsnúmer 2017020164Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 2 fyrir rekstur umhverfis- og mannvirkjasviðs.

9.Hrísey - hestaleiga

Málsnúmer 2017010283Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 23. janúar 2017 frá Ingimari Ragnarssyni í Hrísey þar sem hann óskar eftir leyfi til að reka hestaleigu í Hrísey sumarið 2017. Óskað var eftir umsögn Matvælastofnunar og héraðsdýralæknis NA-umdæmis og gerðu þau ekki athugasemd við að leyfið yrði veitt með bréfi dagsettu 27. apríl 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar málefnun um leyfi til búfjárhalds í Hrísey til umsagnar í hverfisráði Hríseyjar og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.

10.Flokkun Eyjafjörður ehf - samningur um losun rotþróa

Málsnúmer 2017050069Vakta málsnúmer

Rætt um samning varðandi tæmingu rotþróa frá 19. desember 2000 sem í gildi er á milli sveitarfélaga í Eyjafirði og Gámaþjónustu Norðurlands ehf.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti að samningnum verði sagt upp með samningsbundnum fyrirvara.

11.Græn bílastæði í miðbæ Akureyrar

Málsnúmer 2017050071Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Vistorku ehf dagsett 28. apríl 2017 um fjölgun grænna bílastæða við Skipagötu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar erindinu til skipulagsráðs en leggur jafnframt til að ákvörðunum um bílastæðamál í miðbænum verði frestað þar til framkvæmdum við Austurbrú lýkur.

12.Maðurinn sem minnkaði Vistsporið sitt

Málsnúmer 2017050025Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 29. mars 2017 frá Sjálfbæru Íslandi vistsporamælinga- og viðburðasetri. Þar er Akureyrarbæ boðið að taka þátt í verkefni þeirra sem er að sýna heimildarmyndina "Maðurinn sem minnkaði Vistsporið sitt" fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar og almenning. Heildarkostnaður Akureyrarbæjar við verkefnið er áætlaður á bilinu kr. 200-500.000.
Umhverfis- og mannvirkjaráð getur ekki orðið við erindinu þar sem ráðið hefur ekki fjármagn í styrkveitingar og vísar erindinu því til bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 11:50.