Bæjarráð

3869. fundur 14. nóvember 2024 kl. 08:15 - 11:24 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir varaformaður
  • Hlynur Jóhannsson
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Sindri S. Kristjánsson
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá
Sindri S. Kristjánsson S-lista sat fundinn í forföllum Hildu Jönu Gísladóttur.

1.Háskólinn á Akureyri - starfsemi

Málsnúmer 2024101093Vakta málsnúmer

Áslaug Ásgeirsdóttir rektor Háskólans á Akureyri kynnti starfsemi háskólans.
Bæjarráð þakkar Áslaugu Ásgeirsdóttur fyrir komuna.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2024-2027 - viðauki

Málsnúmer 2023020943Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 6.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttur forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir viðauka 6 og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.


Viðaukinn er vegna fjölgunar stöðugilda í Skógarlundi til að mæta auknum notendafjölda, samtals 7,0 m.kr., búnaðarkaupa vegna endurbóta í Glerárgötu 26, samtals 7,0 m.kr. sem færast á efnahagsreikning, breytinga á kjarasamningum á árinu samtals 349,1 m.kr. og uppfærðrar úthlutunaráætlunar Jöfnunarsjóðs og aukinnar staðgreiðslu, samtals kr. 1.055 m.kr. Samhliða viðauka er gerð leiðrétting vegna nýrra salerna í Lystigarðinum sem færð er af rekstri yfir á fjárfestingu, launaáætlunar í sameiginlegum kostnaði 75 m.kr., alþingiskosninga 14,0 m.kr. rekstrarútgjöld og tekjur og tilfærslu fjárfestinga í vélaskemmu úr Hlíðarfjalli yfir á Fasteignir Akureyrar, samtals 250 m.kr. Lítilsháttar breytingar verða á áætluðum fjármagnsliðum milli fyrirtækja í a-og b- hluta. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar hækkar um 634 m.kr. og handbært fé í árslok hækkar um 617 m.kr.

3.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2025-2028

Málsnúmer 2024040694Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar og Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Starfsáætlun mannauðssviðs 2025

Málsnúmer 2024091418Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að starfsáætlun mannauðssviðs fyrir árið 2025.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

5.Viska - kjarasamningur 2024 - 2024

Málsnúmer 2024100504Vakta málsnúmer

Kynntur nýr kjarasamningur Visku og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

6.Vísindasjóður Kjalar

Málsnúmer 2024110342Vakta málsnúmer

Umfjöllun um erindi dagsett 28. október 2024 frá Örnu Jakobínu Björnsdóttur formanni Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu um skipan tveggja fulltrúa Akureyrarbæjar í stjórn Vísindasjóðs Kjalar vegna tónlistarskólakennara.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að skipa Höllu Margréti Tryggvadóttur sviðsstjóra mannauðssviðs og Þóru Þorsteinsdóttur forstöðumann launadeildar í stjórn sjóðsins.

7.Áskorun til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra

Málsnúmer 2024101233Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 29. október 2024 frá Hönnu Dóru Markúsdóttur fyrir hönd formanna og samráðsfulltrúa félaga kennara á Norðurlandi eystra með áskorun um skólamál í tengslum við kjaradeilu.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessu lið.
Bæjarráð þakkar framlagða áskorun kennara og stjórnenda á Norðurlandi eystra og tekur undir mikilvægi þess að fagmennska og gæði séu ávallt ríkjandi í öllu skólastarfi svo tryggja megi börnum og ungmennum góða kennslu. Skilyrðislaust ber að vanda orðræðu um allar starfsstéttir og brýnt er að kjaradeila kennara leysist sem fyrst svo forðast megi frekara rask á skólastarfi.

8.Alþingiskosningar 2024

Málsnúmer 2024100612Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Helgu G. Eymundsdóttur formanns kjörstjórnar á Akureyri varðandi framkvæmd alþingiskosninga 2024.
Bæjarráð samþykkir tillögur kjörstjórnar vegna alþingiskosninga 30. nóvember næstkomandi.

9.Akureyrarflugvöllur - framkvæmdir og breytingar

Málsnúmer 2024030834Vakta málsnúmer

Rætt um stöðu mála á Akureyrarflugvelli, aukið millilandaflug og seinkun á tilkomu aðflugsferla úr suðri.
Bæjarráð fagnar merkum áfanga í samgöngumálum með reglubundnu millilandaflugi easyJet, fyrst til Gatwick og sl. þriðjudag bættist Manchester við sem áfangastaður.

Hins vegar lýsir bæjarráð yfir áhyggjum með seinagang við hönnun nýrra RNP aðflugsferla úr suðri. Þörf á úrbótum hefur lengi blasað við, sem bæta mun aðgengi og öryggi umtalsvert, ekki síst fyrir núverandi flug easyJet. Í vetur eru áætluð um 100 flug.

Bættir flugferlar úr suðri hafa legið á borði Isavia frá árinu 2020, en frumdrög voru hönnuð þegar árið 2017.

Samkvæmt reglum sem stjórnvöld hafa fullgilt átti að ljúka verkinu fyrir 25. janúar 2024.

Bæjarráð harmar þessa seinkun og skorar á Isavia að ljúka útgáfu RNP ferla sem fyrst.

10.Stjórn Norðurorku hf. - fundargerðir 2022-2024

Málsnúmer 2022031302Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 303. fundar stjórnar Norðurorku sem haldinn var 22. október síðastliðinn.

11.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2024

Málsnúmer 2024010317Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 954. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var mánudaginn 4. nóvember 2024.

12.Fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2024

Málsnúmer 2024110192Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 82. og 83. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga ásamt fundargerð aðalfundar sem haldinn var 9. október á Hilton Reykjavík Nordica.

13.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999 (réttur til sambúðar) 79. mál

Málsnúmer 2024110239Vakta málsnúmer

Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar mál nr. 79, frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999 (réttur til sambúðar): https://www.althingi.is/altext/pdf/155/s/0079.pdf

14.Tillaga til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum 75. mál

Málsnúmer 2024110243Vakta málsnúmer

Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar mál nr. 75, tillaga til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum: https://www.althingi.is/altext/pdf/155/s/0075.pdf

Fundi slitið - kl. 11:24.