Akureyrarbær hefur samþykkt að auglýsa eftir kauptilboði í 45 einbýlis-, par- og raðhúsalóðir í Móahverfi.
Við skipulag svæðisins var lögð áhersla á að leggja grunninn að nýju og vönduðu íbúðahverfi með fjölbreyttum íbúðagerðum og grænum svæðum sem verður aðlaðandi til búsetu. Áhersla er á góðar tengingar gangandi og hjólandi innan hverfis, við aðliggjandi hverfi og útivistarsvæði.
Í hverfinu í heild er gert ráð fyrir á bilinu 960-1.100 íbúðum og hefur 11 lóðum þegar verið úthlutað þar sem byggja má um 270 íbúðir.
Yfirlitsmynd af auglýstum lóðum
Úthlutunarskilmálar
Deiliskipulagsuppdráttur
Greinargerð deiliskipulags
Tilboðum í lóðir skal skila rafrænt hér í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 12 fimmtudaginn 4. júlí 2024. Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita umsókn fyrir hönd umsækjenda
Hér má nálgast leiðbeiningar um hvernig skila megi inn rafrænu tilboði/umsókn.
Eftirfarandi eru þær lóðir sem eru í auglýsingu. Með því að velja hlekk lóðar má nálgast útboðsgögn og í framhaldinu skila inn tilboði.
*Gatnagerðargjald hækkar eða lækkar 1. hvers mánaðar samkvæmt verðgrunni fyrir gatnagerðargjald hjá Hagstofu Íslands.