Ungmennaráð

56. fundur 06. nóvember 2024 kl. 16:00 - 18:15 Rósenborg
Nefndarmenn
  • Aldís Ósk Arnaldsdóttir
  • Arna Lísbet Ásgeirsdóttir
  • Bjarki Orrason
  • Fríða Björg Tómasdóttir
  • Heimir Sigurpáll Árnason
  • Íris Ósk Sverrisdóttir
  • Leyla Ósk Jónsdóttir
  • Lilja Dögun Lúðvíksdóttir
  • Rebekka Rut Birgisdóttir
  • París Anna Bergmann Elvarsd.
  • Ólöf Berglind Guðnadóttir
Starfsmenn
  • Hafsteinn Þórðarson umsjónarmaður ungmennaráðs ritaði fundargerð
  • Arnar Már Bjarnason forvarna- og félagsmálafulltrúi
  • Ari Orrason forvarna- og félagsmálafulltrúi
Fundargerð ritaði: Hafsteinn Þórðarson umsjónarmaður
Dagskrá

1.Mánaðarleg yfirferð

Málsnúmer 2022120502Vakta málsnúmer

Farið varyfir verkefnin sem hafa átt sér stað frá því að ungmennaráð fundaði í byrjun október.

2.Ungmennaráð - breytingar í nefndum og kosning áheyrnarfulltrúa 2022-2024

Málsnúmer 2022030297Vakta málsnúmer

Kosið var um nýjan áheyrnarfulltrúa í umhverfis- og mannvirkjaráði.
Íris Ósk Sverrisdóttir verður áheyrnarfulltrúi í stað Leylu Óskar Jónsdóttur.

3.Memmm play

Málsnúmer 2024080360Vakta málsnúmer

Helga Sif Pétursdóttir iðjuþjálfi og Eydís Stefanía Kristjánsdóttir barnabókavörður hjá Amtsbókasafninu kynntu verkefnið Memmm Play.

4.Efling félagsmiðstöðvastarfs á miðstigi, hinsegin félagsmiðstöðvar og tómstundastarfs barna á flótta

Málsnúmer 2023110068Vakta málsnúmer

Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og frístundadeildar kynnti hugmyndir um eflingu félagsmiðstöðvastarfs á miðstigi, hinsegin félagsmiðstöðvar og

tómstundastarfs barna á flótta.

5.Fundir með nemendaráðum

Málsnúmer 2022120502Vakta málsnúmer

Rætt var um stöðuna á fundum með nemendaráðum bæjarins vegna stórþings barna í janúar 2025.

6.Alþjóðlegur dagur barna

Málsnúmer 2022120502Vakta málsnúmer

Ræddar voru hugmyndir fyrir alþjóðlegan dag barna þann 20.nóvember n.k.

7.Lýðheilsustefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2022010391Vakta málsnúmer

Skrifstofa fræðslu- og lýðheilsviðs óskaði eftir þátttöku ungmennaráðs við að móta lýðheilsustefnu Akureyrarbæjar. Ungmennaráð mun svara spurningum og senda svörin til baka.

8.Erindi til fræðslu- og lýðheilsuráðs frá faghópi leikskólastjóra

Málsnúmer 2024100621Vakta málsnúmer

Rætt var um erindi faghóps leikskólastjóra vegna barna í vanda.

9.Foreldrafélag Hólmasólar varðandi bílastæðamál

Málsnúmer 2022120502Vakta málsnúmer

Rætt var um erindi foreldrafélags Hólmasólar varðandi bílastæðamál við leikskólann.

10.Dale Carnegie

Málsnúmer 2024100069Vakta málsnúmer

Rætt var um ósk Dale Carnegie á Íslandi eftir samstarfi við Akureyrarbæ í því skyni að bjóða upp á fræðslu fyrir ungmenni.

11.Geðheilbrigðismál ungmenna

Málsnúmer 2023050333Vakta málsnúmer

Rætt var um minnisblað sem unnið var af sviðsstjórum velferðarsviðs og fræðslu- og lýðheilsusviðs um þætti er tengjast sveitarfélögum varðandi atriði gagnvart aðgerðum gegn ofbeldi meðal barna.

12.ÍBA - viðhalds- og búnaðaróskir og þarfir aðildarfélaga ÍBA

Málsnúmer 2024091032Vakta málsnúmer

Rætt var um samantekt frá ÍBA vegna yfirlits frá aðildarfélögum ÍBA um áætlaða framkvæmd og viðhaldsþörf þar sem óskað var eftir aðkomu Akureyrarbæjar.

13.Fjárhagsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs - gjaldskrár

Málsnúmer 2024090893Vakta málsnúmer

Rætt var um fjárhagsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs og farið yfir drög að gjaldskrám sem taka eiga gildi 1. janúar 2025.

14.Ósk um hækkun á fjárframlagi Akureyrarbæjar til KFUM&K á Akureyri

Málsnúmer 2023090138Vakta málsnúmer

Rætt var um minnisblað KFUM og KFUK sem lagt var fyrir fræðslu- og lýðheilsuráð þann 25. september sl.

Fundi slitið - kl. 18:15.